Friday, March 5, 2010

Nýlistasafnið/Living Art Museum


Vorum að fá hið mikla þrekvirki Nýlistasafnið/The Living Art Museum 1978-2008 í hús.

Texti fengin af heimasíðu Nýlistasafnsins:

"Nýlistasafnið hefur gefið út bókina Sýningayfirlit Nýlistasafnsins 1978-2008. Tilefni útgáfunnar er að fagna 30 ára afmæli safnsins, sem var 5. janúar 2008.

Frá stofnun hefur Nýlistasafnið – Nýló verið mikilvægur þáttur í íslensku samfélagi og menningarumhverfi. Safnið er stofnað og rekið af listamönnum og hefur sinnt hlutverki sínu sem sýninga- og umræðuvettvangur með því að skipuleggja alþjóðlega listviðburði og tengjast ýmsum menningarstofnunum innanlands sem utan.

Tilgangurinn með ritinu er að ná utan um sýningasögu safnsins og vera heimild um merka stofnun í myndlist samtímans. Með þessari útgáfu er skjala- og gagnasafn safnsins opnað og þannig er áhugasömum gefin innsýn í hvernig safnið hefur kynnt sig og starfsemi sína í gegnum tíðina. Í ritinu er að finna grunnupplýsingar um starfsemi og hlutverk safnsins og miðast uppsetning þess fyrst og fremst við að auðvelt sé að leita upplýsinga og hafa ánægju af um leið.

Ritið er mikilvægt uppflettirit fyrir alla þá hafa áhuga á samtímamyndlist, grafískri hönnun, menningar- og safnafræði"

Ritstjórn: Tinna Guðmundsdóttir

Hönnun: Ármann Agnarsson

Verð: 4900 kr í Útúrdúr